Lést eftir vinnuslys í Keflavík

Maðurinn sem slasaðist við vinnu sína í Plast­gerð Suður­nesja í dag hefur verið úrskurðaður látinn. Þetta staðfestir lög­regl­an á Suður­nesj­um í sam­tali við mbl.is.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn að hreinsa vél sem steypir frauðplastkassa þegar hún fór skyndilega af stað og varð hann undir einu af mótunum. Hann þurfti önd­un­araðstoð þegar sjúkra­liðar komu á vett­vang og lést af áverkum sínum á slysadeild.

Ættingjar mannsins hafa verið látnir vita, en maðurinn var á fertugsaldri og pólskur að uppruna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert