„Viljugur til verka og hörkuduglegur“

Sunday í vinnunni.
Sunday í vinnunni. Ljósmynd/Ragnheiður Freyja

Hann hefur lagt sig 110% fram í vinnu,“ segir Kristinn Pálsson, vinnuveitandi nígeríska hælisleitandans Sunday, í samtali við mbl.is. Sunday, eiginkonu hans Joy og átta ára gamalli dóttur þeirra, Mary, verður vísað úr landi en þau sóttu um hæli hér á landi og dval­ar­leyfi af mannúðarástæðum. 

Fjölskyldan hefur búið hér á landi í eitt og hálft ár en konan var fórnarlamb mansals í Evrópu áður en þau komu hingað. Maðurinn er bú­inn að vera í vinnu hjá sama bygg­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu all­an tím­ann og Mary geng­ur í skóla hér á landi og tal­ar ís­lensku.

Kristinn bendir á að maðurinn búi á Suðurnesjum og komi alltaf með strætó til vinnu. „Ef við erum að vinna í Reykjavík er hann fyrstur á verkstað og alls staðar þar sem hann vinnur. Hann er algjörlega til fyrirmyndar með mætingar, hefur aldrei verið veikur og eina vesenið er að hann er að berjast fyrir landvistarleyfinu sínu.

Fjölskyldan er í mjög viðkvæmri stöðu en mjög þakklát fyrir …
Fjölskyldan er í mjög viðkvæmri stöðu en mjög þakklát fyrir allan stuðninginn. Mynd/Ragnheiður Freyja

Fjöl­skyld­an sótti um hæli hér á landi og dval­ar­leyfi af mannúðarástæðum. Fyrst var niðurstaðan sú að þau væru í of viðkvæmri stöðu til að vera send aft­ur til Ítal­íu og skyldu því fá efn­is­lega meðferð á Íslandi. Síðar var hins veg­ar kom­ist að þeirri niður­stöðu að þau gætu snúið aft­ur til Níg­er­íu og hef­ur kær­u­nefnd út­lend­inga­mála staðfest þá ákvörðun. Þeim verður því vísað úr landi.

„Á meðan okkur vantar vinnuafl er verið að að vísa þessum manni úr landi. Hann hefur lagt sig 110% fram í vinnu, hefur barist fyrir lífi sínu og vill vera hérna,“ segir Kristinn og botnar lítið í niðurstöðu Útlendingastofnunar.

„Það er mjög mikil þversögn í þessu. Hann er viljugur til verka og hörkuduglegur strákur.“

Boðið hefur verið til opins fundar til stuðnings fjölskyldunni. Fundurinn fer fram á annarri hæð kaffihússins Stofunnar í dag klukkan 17.30.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert