„Menn endast hérna á meðan veðrið er gott,“ segir Guðmundur Ögmundsson þjóðgarðsvörður í Ásbyrgi í samtali við mbl.is í dag. Þétt var setið á tjaldsvæðunum þar, en á svæðinu var tuttugu stiga hiti og léttskýjað. Sú veðursæld laðar að og hefur fjöldi fólks verið á svæðinu í líðandi viku.
Íslendingar eru áberandi í hópi Ásbyrgisgesta nú. Gjarnan er það fólk til dæmis frá Akureyri eða Eyjafjarðarsvæðinu sem notar tækifæri í góða veðrinu og fer hóflega langt í útilegu. Þá sést fólk að sunnan á svæðinu og aðrir eru komnir frá fjarlægari slóðum. Margir gista í tjöldum, en aðrir eru í vögnum eða fellihýsum.
Allt á svæðinu gengur eins og í sögu. Fólk sat gjarnan við tjaldskörina og sleikti sólskinið og krakkar léku sér.