Skálholtshátíð sett með klukknahljómi

Krisján Valur Ingólfsson vígslubiskup tekur á móti pílagrímum á Skálholtshátíð …
Krisján Valur Ingólfsson vígslubiskup tekur á móti pílagrímum á Skálholtshátíð í fyrra. Af vef Skálholts

500 ára afmæli siðbótar Marteins Luther setur svip sinn á Skálholtshátíð sem hófst í dag og stendur alla helgina. Dr. Margot Käßmann, prófessor og fyrrverandi biskup og sendifulltrúi kirkjuráðs evangelísku kirkjunnar í Þýskalandi, er sérstakur gestur hátíðarinnar í ár og mun flytja hátíðarræðu á morgun kl. 16.15.

Hátíðin var sett á hádegi í dag á kirkjutröppum Skálholtsdómkirkju með klukknahringingu. Síðan hófst útimessa við Þorlákssæti.

Kl. 13.30 er Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðingur með kynningu á uppgreftrinum sunnan kirkjunnar og kl. 14:30 er grasaskoðunarganga undir leiðsögn Sigþrúðar Jónsdóttur náttúrufræðings – ennfremur söguganga undir leiðsögn sr. Halldórs Reynissonar.

Kl. 16.00 hefjast tónleikar í Skálholtsdómkirkju þar sem m.a. verður flutt Kantata Jóhanns Sebastians Bach nr.  126: Halt oss Guð við þitt hreina orð / Erhalt uns Gott bei deinem Wort. Uppistaðan í textanum er sálmur Marteins Luther með sama nafni.  Flytjendur eru  Skálholtskórinn og Bachsveitin í Skálholti og einsöngvararnir Hildigunnur Einarsdóttir alt,  Benedikt Kristjánsson  tenór og Oddur Arnþór Jónsson bassi. Kórstjóri er Jón Bjarnason og stjórnandi Benedikt Kristjánsson. Dagskrá laugardagsins lýkur svo með kvöldbænum í kirkjunni kl. 18.

Dagskráin á morgun er eftirfarandi:

Sunnudaginn 23. júlí eru eru morgunbænir kl. 9 en síðan orgeltónleikar kl. 11 þar sem Jón Bjarnason leikur orgelverk eftir Johann Sebastian Bach.

Hátíðarmessa hefst kl. 13.30 með inngöngu pílagríma sem gengið hafa pílagrímagöngu til hátíðarinnar frá Strandarkirkju í Selvogi, frá Bæjarkirkju í Borgarfirði og frá Þingvallakirkju. Sr. Kristján Valur Ingólfsson predikar en leikmenn, prestar og biskupar lesa og aðstoða við útdeilingu. Að lokinni messu er kirkjukaffi í Skálholtsskóla.

Hátíðarsamkoma hefst í kirkjunni kl. 16.15. Hátíðarræðu flytur dr. Margot Käßmann, prófessor og fyrrum biskup. Ávörp flytja  Sigríður A. Andersen dómsmálaráðherra og sr. Karl Sigurbjörnsson biskup og formaður Skálholtsfélagsins hins nýja, en sr. Agnes M Sigurðardóttir biskup Íslands flytur lokaorð og blessun. Jón Bjarnason leikur á orgel, Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. og Skálholtskórinn syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar. Hátíðin endar með kvöldbænum kl. 18.00.

Skálholtshátíð var fyrst haldin árið 1948.  Það var upphafið að endurreisn Skálholtsstaðar. Þetta er því sjötugasta starfsár uppbyggingarinnar í Skálholti, og enn er mikið verk framundan!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert