Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt menn sem höfðu komið inn í Nettó á Fiskislóð rétt eftir miðnætti og tekið þar ófrjálsri hendi innkaupakerru fulla af vörum.
Mennirnir yfirgáfu svo verslunina án þess að borga fyrir vörurnar í kerrunni, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.
Tilkynningin barst rétt eftir miðnætti og voru mennirnir handteknir nokkru síðar og vistaðir í fangaklefa.