Allir luku keppni í hjólakeppni í Rangárþingi

Keppnin ræst á Hellu.
Keppnin ræst á Hellu. Ljósmynd/Marta Gunnarsdóttir

Fjallahjólakeppnin Rangárþing Ultra var haldin í fyrsta skipti laugardaginn 22. júlí. Keppnin gekk gríðarlega vel og um 80 keppendur hjóluðu. Þrátt fyrir örlítinn mótvind á síðari hluta leiðarinnar skiluðu sér allir í mark. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Fremstu tveir etja kappi.
Fremstu tveir etja kappi. Ljósmynd/Marta Gunnarsdóttir

Það eru sveitarfélögin Rangárþing ytra og Rangárþing eystra sem standa saman að keppninni en keppnin er sprottin upp úr hinni vinsælu götuhjólakeppni Tour de Hvolsvöllur.

Hjólað yfir Fiská.
Hjólað yfir Fiská. Ljósmynd/Marta Gunnarsdóttir

Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, ræsti keppnina á Hellu kl. 12. Leiðin lá í gegnum þorpið á Hellu upp hjá bóndabænum Helluvaði og þaðan upp Helluvaðssand. Farið var um Rangárvelli þar til komið var að Fiská og þaðan farið niður í Fljótshlíð og loks endað á Hvolsvelli. Þeir allra fyrstu voru ekki nema 1 klst. og 45 mínútur að hjóla þessa 50 km löngu leið. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra, veitti verðlaun á Hvolsvelli að lokinni keppni.

Hjólað í átt að Reynifelli.
Hjólað í átt að Reynifelli. Ljósmynd/Guðmundur Árnason

Á næsta ári verður leiðinni snúið við. Byrjað verður á Hvolsvelli en endað á Hellu. Við búumst við enn þá stærri keppni og ekki seinna vænna en hefja undirbúning strax fyrir þá sem ætla að taka þátt.

Keppendur á fullri ferð.
Keppendur á fullri ferð. Ljósmynd/Guðmundur Árnason

Keppnisstjórn þakkar keppendum fyrir þátttökuna og öllum sem aðstoðuðu við að gera þessa keppni að veruleika.

Heildarúrslit voru þessi: 

Karlar

  1. Ingvar Ómarsson 01:46:44.2
  2. Birkir Snær Ingvarsson 01:46:45.4
  3. Kristján Jakobsson 01:54:37.8

Konur

  1. Anna Kristín Pétursdóttir 02:19:19.9
  2. Kristrún Lilja Júlíusdóttir 02:22:54.7
  3. Valborg Guðlaugsdóttir 02:24:03.0 

Nánari úrslit eru aðgengileg á www.timatakan.net og allar upplýsingar á www.rangarthingultra.is

Keppendur voru hvattir dyggilega áfram.
Keppendur voru hvattir dyggilega áfram. Ljósmynd/Marta Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert