Reyndu að lokka drengi upp í bíl

Tveir menn á appelsínugulum bíl reyndu að lokka 3 drengi …
Tveir menn á appelsínugulum bíl reyndu að lokka 3 drengi inn í bíl með nammi þegar þeir gengu yfir gangbraut við Kirkjustétt í Grafarholti á laugardaginn. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Tveir menn á appelsínugulum bíl reyndu að lokka þrjá drengi inn í bíl til sín í Grafarholtinu á laugardaginn. Frá þessu greindi áhyggjufullt foreldri inni á Facebook síðu sem kallast „Ég er íbúi í Grafarholti“.

Atvikið átti sér stað um hábjartan dag þegar drengirnir gengu yfir gangbraut við Kirkjustétt. Í færslunni segir að mennirnir hafi reynt að lokka drengina inn í bílinn með því að bjóða þeim nammi. Þegar þeir neituðu og hlupu í burtu hafi bíllinn ekið á eftir þeim og var þeim talsvert brugðið. 

Valgarður Valgarðsson aðalvarðstjóri segir að lögreglunni hafi ekki verið tilkynnt um atvikið en verið sé að skoða málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert