Væru rúmar tíu mínútur frá Landeyjahöfn

Frá fyrstu ferð Herjólfs til Landeyjahafnar.
Frá fyrstu ferð Herjólfs til Landeyjahafnar. mbl.is/RAX

Hópurinn Horft til framtíðar hefur sent Jóni Gunnarssyni samgönguráðherra og Hreini Haraldssyni vegamálastjóra lista yfir hentugar ferjur, sem leyst geta Herjólf af þegar hann fer til viðgerðar.

Þetta kemur fram á fréttavefnum Eyjar.net. Segir þar að samkvæmt heimildum vefsins séu umræddar ferjur á sölu auk þess sem hægt sé að leigja þær. Þá hafi þær leyfi til siglinga á hafsvæði B, eins og Herjólfur.

Báðar ferjurnar sem nefndar eru til sögunnar á vefnum eru tvíbytna. Þá er ganghraði þeirra sagður vera 36 hnútar, eða næstum þrisvar sinnum meiri en ganghraði Herjólfs, sem er 14 hnútar.

Þannig væru þær rúman klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Eyja og aðeins rúmar tíu mínútur frá Landeyjahöfn, að því er fram kemur á vefnum.

Áður hefur mbl.is greint frá því að Vega­gerðin tel­ur að of dýrt hefði verið að leigja bíl­ferju frá út­lönd­um til að leysa Herjólf af á meðan hann er í slipp. Þá sé ekki endi­lega víst að slík­ar ferj­ur gætu siglt bæði í Land­eyja­höfn og til Þor­láks­hafn­ar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert