Þyrlan sótti veikan sjómann

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð út um fimmleytið í dag til …
Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð út um fimmleytið í dag til að sækja veikan sjómann á fiskiskip á Norðurlandi. Rax / Ragnar Axelsson

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð út um fimmleytið í dag til að sækja veikan sjómann á fiskiskipi við strendur Norðurlands.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni fór þyrlan í loftið um fimmleytið og lenti þremur klukkutímum síðar, um áttaleytið, við Borgarspítala.

Ekki er vitað um núverandi ástand sjómannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert