Skjálfta­hrinan stendur enn

Grænu stjörn­urn­ar sýna hvar stærstu skjálft­arn­ir mæld­ust. Skjálfta­hrinan, sem hófst …
Grænu stjörn­urn­ar sýna hvar stærstu skjálft­arn­ir mæld­ust. Skjálfta­hrinan, sem hófst norðaust­an við Fagra­dals­fjall á Reykja­nesskaga í morg­un, er enn í gangi. Kort/Veðurstofa Íslands

Skjálfta­hrinan, sem hófst norðaust­an við Fagra­dals­fjall á Reykja­nesskaga í morg­un, stendur enn. Á annað hundrað skjálfta hefur mælst síðan í morgun, þar sem flestir voru af stærðinni 1,0 og 2,0. Þá hafa mælst sjö skjálftar sem hafa verið um 3,0 að stærð eða stærri.

Eins og mbl.is greindi frá í morgun, greindust tveir skjálft­ar um 3,0 að stærð, ann­ars veg­ar klukk­an 07.27 og svo klukk­an 07.56 í morg­un. Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands greindust um  hádegisbil fjórir skjálftar að stærð 3,0 eða stærri. Stærsti skjálftinn um það leyti mældist klukkan 11.40 og var 3,9 að stærð.

Klukkan 13.55 varð svo skjálfti að stærð 4,0 með upp­tök um tvo og hálf­an kíló­metra aust­an við Fagra­dals­fjall á Reykja­nesskaga varð. Síðan þá hafa minni skjálftar fylgt eftir. Að sögn Gunnars B. Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands, á hann ekki von á fleiri stórum skjálftum. Það sé þó ekki víst.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Krist­ínu Jóns­dótt­ur jarðskjálfta­fræðingi eru hrin­ur á þessu svæði mjög al­geng­ar. „Við höf­um séð það und­an­far­in ár að þarna verða hrin­ur,“ seg­ir hún. „Þetta er mjög týpískt fyr­ir Reykja­nesið,“ bæt­ir hún við.

Upp­lýs­ing­ar um jarðskjálfta á vef Veður­stofu Ísland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert