Slasaðist á Esjunni

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu náði í konu sem slasaðist á Esjunni …
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu náði í konu sem slasaðist á Esjunni í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Sækja þurfti konu upp á Esjuna í dag sökum þess að hún hafði meitt sig á ökkla og gat ekki haldið áfram göngu. Konan var komin upp um mitt fjallið er hún slasaðist.

Konan slasaðist á göngu upp fjallið um klukkan 14 í dag. Slökkviliðið sendi á vettvang sexhjól sem hægt er að keyra upp göngustíginn og náði í konuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert