Bæjarins bestu á nýjum stað

Búið er að færa pylsuvagn Bæjarins bestu um set. Nú er vagninn á stéttinni fyrir framan Hótel 1919 og mun verða þar næstu mánuðina þar sem verið er að framkvæma á reitnum sem hann hefur staðið á síðustu 80 árin.

Lúgan á pylsuvagninum heimsfræga snýr nú í átt að Arnarhóli og því má gera ráð fyrir að röðin í vagninn komi til með teygja sig inn Pósthússtræti í átt að Austurstræti þegar erillinn í pylsusölunni verður hvað mestur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert