Tafir vegna framkvæmda í Borgarnesi

Talsverðar viðhaldsframkvæmdir verða á hringvegi frá Borgarnesi að Laugabakka í Miðfirði næstu daga og verður umferðarstýring við framkvæmdasvæðið með 10-15 mínútna bið í senn.

Einnig er unnið við blettanir í Dölunum. Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitsemi á meðan þetta stendur yfir. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert