1.200 tóku Faxaflóaferjuna í júlí

1.200 manns hafa nýtt sér ferjuna í júlí.
1.200 manns hafa nýtt sér ferjuna í júlí. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um 1.200 manns hafa tekið Faxaflóaferjuna Akranes í júlí. Þetta kemur fram í svari Ólafs Williams Hand, framkvæmdastjóra upplýsingamála hjá Eimskip, við fyrirspurn mbl.is.

Jómfrúsiglingin var um miðjan júní en ferjan siglir þrisvar á dag milli Reykjavíkur og Akraness. Hún tekur 110 manns í sæti og kostar ein ferð 2.500 en 4.000 krónur fram og til baka. Með 20 miða korti kostar ferðin 875 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert