Eldur í dekkjum hjá BM Vallá

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst nú um hálfellefuleytið tilkynning um eld sem logar í dekkjahrúgu á svæði BM Vallár á Ártúnshöfða.

Slökkvilið er komið á staðinn og vinnur að því að ráða niðurlögum eldsins. Töluverðan reyk leggur frá dekkjunum, en að sögn slökkviliðs er ekki talin hætta á að eldurinn breiði úr sér.

Talið er að um íkveikju sé að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert