Fékk vinningin á stórafmælisárinu

Það var ánægð kona sem mætti á skrifstofu Íslenskrar getspár í dag til að taka við 15,2 milljónum króna sem hún hlaut fyrir 2. vinning í Víkingalottóinu nú í vikunni.

Konan hafði keypt miðann á lotto.is að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Hún hafði ekki hugmynd um vinninginn fyrr hún fékk óvænt og skemmtilegt símtal  frá starfsmanni Getspár.

Vinningshafinn fagnar stórafmæli á árinu og hefur því tvöfalda ástæðu til að gleðjast með sínum nánustu.

Íslensk getspá minnir á að Lottó potturinn er fjórfaldur næstkomandi laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert