Ráðherra tjáir sig um tískumynd

Björt Ólafsdóttir.
Björt Ólafsdóttir.

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, segist ekki hafa ætlað að brjóta gegn virðingu Alþingis með því sitja fyrir í myndatöku í sal Alþingis í auglýsingaskyni fyrir breska tískuvörumerkið Galvan London.

Ljósmynd af ráðherranum í Alþingissalnum birtist á Instagram-síðu vörumerkisins. 

Björt segir á Facebook-síðu sinni að sér þyki miður ef ljósmyndin skapi slík hughrif að fólki finnist hún brjóta gegn virðingu Alþingis.

Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra í auglýsingunni.
Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra í auglýsingunni. Ljósmynd/Instagram-síða Galvan London
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert