Bílbelti bjargaði ökumann eftir veltu

Fólksbíll valt út af vegi á Háreksstaðaleið á Austurlandi um klukkan hálffjögur í dag. Ekki er vitað um tildrög slyssins en ökumaður, kona sem var ein í bílnum, var flutt til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Egilsstöðum.

Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum er bíllinn talsvert skemmdur, loftpúðar sprungu en það voru beltin sem björguðu ökumanni. Ekki er vitað frekar um líðan konunnar að svo stöddu en meiðsli hennar eru ekki talin alvarleg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert