Ragga Gísla fékk lunda fyrir lagið

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

„Þetta lítur hrikalega vel út, gott veður og allir bara orðnir mjög spenntir,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, talsmaður þjóðhátíðarnefndar í samtali við mbl.is. Þjóðhátíð var sett í blíðskaparveðri í gær og að vanda var boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði sem halda áfram alla helgina.

Kvöldvakan hófst með heimastúlkunni Söru Renee úr Eyjum sem tók lagið. Þá mættu meðal annarra á svæðið MC Gauti og Rigg, hópur þjóðþekktra söngvara. Þá má ekki má gleyma Röggu Gísla sem samdi þjóðhátíðarlagið í ár sem hún að sjálfsögðu flutti fyrir fjöldann sem lét fara vel um sig í brekkunni í Herjólfsdal. 

Bjarni Ólafur Guðmundsson afhenti Röggu lunda fyrir hönd þjóðhátíðarnefndar sem þakklætisvott fyrir þjóðhátíðarlagið.

Á miðnætti var svo tendrað í brennunni og hélt veislan áfram fram eftir nóttu. Gríðargóð stemning var í dalnum líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum sem ljósmyndari mbl.is fangaði á filmu.

Bjarni Ólafur Guðmundsson afhendir Röggu Gísla lunda frá þjóðhátíðarnefnd sem …
Bjarni Ólafur Guðmundsson afhendir Röggu Gísla lunda frá þjóðhátíðarnefnd sem þakklætisvott fyrir þjóðhátíðarlagið. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Það er nokkurra daga partý í Herjólfsdal um helgina.
Það er nokkurra daga partý í Herjólfsdal um helgina. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Eyjastelpan Sara Renée byrjaði ballið.
Eyjastelpan Sara Renée byrjaði ballið. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Rigg - Friðrik Ómar, Regína Ósk, Eyþór Ingi, Selma Björns, …
Rigg - Friðrik Ómar, Regína Ósk, Eyþór Ingi, Selma Björns, Jógvan og Matti Matt. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert