5 kynferðisbrotamál komið upp

Þrjú brotanna eru tengd útihátíðum. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Þrjú brotanna eru tengd útihátíðum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Fimm kynferðisbrotamál hafa komið upp um helgina, og þar af þrjú tengd útihátíðum. Þetta staðfestir Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítala. 

Hrönn segir að ekki hafi öll málin komið inn til neyðarmóttökunnar, en hún hafi fengið upplýsingar um þau. Ekki fást upplýsingar að svo stöddu hvar á landinu brotin voru framin.

Um er að ræða fleiri brot en komu upp um verslunarmannahelgina á síðasta ári, en þá var eitt brot tengt útihátíð að sögn Hrannar. 

Met­fjöldi mála á ein­um mánuði kom á borð neyðar­mót­tökunnar í júlí, þegar tutt­ugu og átta manns leituðu þangað. Sam­tals hef­ur 41 ein­stak­ling­ur leitað til neyðar­mót­tök­unn­ar í júní og júlí, og 110 það sem af er ári. Í fyrra leituðu fleiri en nokkru sinni á neyðarmóttökuna, en þá voru 169 komur skráðar.

Í viðtali við mbl.is í síðustu viku sagðist Hrönn halda að ástæða fjölgunarinnar væri að þolendur leiti í auknum mæli á neyðarmóttöku, en ekki aukning í brotum.

Þá sagði hún skömm­ina ekki eiga að liggja hjá brotaþola held­ur ger­anda. „Það er ekki eins og neinn bjóði upp á að láta brjóta á sér kyn­ferðis­lega og fókus­inn verður að vera meiri á gerend­ur og af hverju þeir brjóti á öðrum.“

mbl.is/Hjörtur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert