Verslunin Iðnú í Brautarholti var oftast með lægsta verðið og Penninn-Eymundsson oftast með hæsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 33 algengum nýjum námsbókum fyrir framhaldsskóla fimmtudaginn 10. ágúst.
Misjafnt var hversu margir þeirra titla sem skoðaðir voru fengust í verslununum. Í A4 Skeifunni fengust allir 33 titlarnir en í Máli og Menningu Laugarvegi einungis 13 þeirra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.
Lægsta verðið var oftast hjá Iðnú í Brautarholti eða á 21 titli af 33. Þar á eftir kom Forlagið Fiskislóð með lægsta verðið á níu titlum. Penninn-Eymundsson Kringlunni var oftast með hæsta verðið í könnuninni eða á 14 titlum af 33. Mál og Menning Laugarvegi var með hæsta verðið í 10 tilfellum.
Af þeim nýju bókum sem skoðaðar voru átti A4 Skeifunni alla 33 titlana eins og Forlagið Fiskislóð átti 30. Fæstir titlanna voru fáanlegir hjá Máli og Menningu Laugarvegi eða 13 af 33, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Mestur var verðmunurinn í könnuninni á bókinni „Stjórnmálafræði“, sem var dýrust hjá Pennanum-Eymundsson Kringlunni 7.399 kr en ódýrust 3.990 kr hjá Heimkaup.is. Það gerir 3.409 króna verðmun eða 85%.
Einnig munaði miklu á verði á „Þýska fyrir þig 1“, vinnubók, sem var á 2.542 kr hjá Iðnú en 4.290 kr hjá Máli og Menningu Laugarvegi, sem er 1.748 kr verðmunur eða 69%.
„Námsmenn ættu að hafa hugfast að verð á algengum bókatitlum getur breyst ört hjá verslunum við upphaf skólaárs. Rétt er að geta þess að 15% afsláttur var á nýjum bókum hjá Iðnú í Brautarholti þegar mælingin fór fram. Samkvæmt auglýsingu sem liggur frammi í versluninni verður þessi afsláttur veittur til 15. september 2017,“ segir í tilkynningunni.
„Kannað var verð í eftirtöldum verslunum Pennanum-Eymundsson Kringlunni, A4 Skeifunni, Forlaginu Fiskislóð, Bókabúðinni Iðnú Brautarholti, Mál og Menningu Laugavegi og á Heimkaup.is.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. Einnig má benda neytendum á að bókabúðirnar gætu verið með staðgreiðsluafslátt og jafnvel afslætti til meðlima.“