Níu með annan vinning í Lottó

Enginn miðahafi var með allar tölur réttar þegar dregið var út í Lottó í kvöld, en fyrsti vinningurinn hljóðaði upp á tæpar 62 milljónir króna. Níu voru hins vegar með fjórar réttar auk bónustölunnar svokölluðu og fær hver um sig 77.070 krónur á mann, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Miðarnir voru seldir í N1 í Reykjanesbæ, N1 á Ísafirði, versluninni Vogum í Vogum og í Tjarnargrilli í Reykjanesbæ. Þá voru þrír miðanna í áskrift og tveir til viðbótar seldir á lotto.is.

Vinningstölurnar voru 1, 5, 9, 24, og 39. Bónustalan var þá 10.

Þrír voru með fjórar réttar tölur í Jóker og fær hver um sig hundrað þúsund krónur. Voru miðarnir seldir í Skalla í Hraunbæ, 10-11 í Reykjanesbæ og á lotto.is.

Jókertölurnar voru 5, 2, 0, 6 og 6.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert