Fjöldahjálparstöðinni lokað

Allir hafa verið útskrifaðir af stöðinni.
Allir hafa verið útskrifaðir af stöðinni. mbl.is/Ófeigur

Allir þeir sem veiktust af nóróveiru á útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni hafa nú verið útskrifaðir af fjöldahjálparstöðinni í Hveragerði og henni verið lokað. Þar er nú unnið að sótthreinsun og standa vonir til að þeirri vinnu ljúki eigi síðar en á morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Segir þar að fulltrúar viðbragðsaðila hafi fundað í Hveragerði klukkan 10 og muni nú taka saman greinargerð um aðkomu síns fólks og aðgerðir, sem farið verði yfir á fundi í byrjun september. 

„Lögreglan á Suðurlandi og umdæmislæknir sóttvarna í héraði vilja þakka viðbragðsaðilum öllum frábæra og óeigingjarna vinnu við þetta stóra verkefni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert