Jakob Svavar heimsmeistari í tölti

Jakob Svavar með Tölthornið eftirsótta.
Jakob Svavar með Tölthornið eftirsótta. Ljósmynd/Hilda Karen Garðarsdóttir

Jakob Svavar Sigurðssonm, á Gloríu frá Skúfslæk, varð í morgun heimsmeistari í tölti á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fer í Hollandi um þessar mundir.

Mun hann hafa sigrað af miklu öryggi. Íslendingar voru þá einnig í öðru og þriðja sæti, en það voru þeir Jóhann Rúnar Skúlason á Finnboga frá Minni-Reykjum og Guðmundur Friðrik Björgvinsson á Straumi frá Feti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert