Lést við Reynisfjöru eftir svifflug

Frá Reynisfjöru.
Frá Reynisfjöru. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Erlendur ferðamaður lést við Reynisfjöru í Mýrdal þegar hann féll til jarðar með svifvæng sem hann flaug þar um kl. 18.43 í kvöld. 

Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Lífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn á staðnum. 

Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi en ekki er unnt að gefa frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert