Sparkaði í konu og hljóp á brott

Á Laugavegi. Mynd úr safni.
Á Laugavegi. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um líkamsárá við Laugaveg skömmu fyrir klukkan fjögur í nótt. Hafði þá maður sparkað í konu og svo hlaupið á brott, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar. Ekki kemur fram hvort hún hafði hendur í hári mannsins.

Ofurölvi maður mun þá hafa verið handtekinn á veitingahúsi í Hamraborg fyrr um nóttina. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu sökum ástands síns.

Um klukkan hálfníu í gærkvöldi var annar maður handtekinn í mjög annarlegu ástandi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Var hann einnig vistaður í fangageymslu lögreglu vegna ástands síns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert