Fimm skátar orðnir veikir

mbl.is/Kristinn Magnússon

Veikindi hafa komið upp hjá nokkrum skátum sem dvöldu í fjöldahjálparstöð í Hveragerði um síðustu helgi en einkennin eru þau sömu og hjá þeim sem veiktust aðfararnótt föstudags að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, uppköst og niðurgangur, en þá var staðfest að um nóró-veiru væri að ræða.

„Okkur skilst að þetta sé ekki óvenjulegt við þessar aðstæður, að einkenni komi seinna fram hjá sumum en öðrum og að í kjölfarið séu líkur á einhverjum smitum til viðbótar. Það var því allt eins von á þessu,“ er haft eftir Elínu Esther Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Úlfljótsvatns, þar sem skátarnir dvelja. Búið hafi verið um hina veiku í sér húsi og þeir þannig aðskildir frá öðrum en alls er um að ræða fimm skáta. 

„Við erum í reglulegu sambandi við heilbrigðisstarfsfólk sem stýrði hjálpinni sem við fengum um helgina og á þessu stigi er ekki litið svo á að þörf sé á frekari aðgerðum. Á þessum tímapunkti er ekkert sem bendir til þess að það sé eitthvað á staðnum sem veldur þessu, en nú verður allt kapp lagt á að koma í veg fyrir frekari smit á milli fólks.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert