Horfi til hagsmuna samfélagsins

Frá Bolungarvík.
Frá Bolungarvík. Sigurður Bogi Sævarsson

Bæjarráð Bolungarvíkurkaupstaðar samþykkti í dag bókun þar sem skorað er á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegsráðherra að horfa til íbúa á norðanverðum Vestfjörðum þegar ákvarðanir eru teknar um framtíð fiskeldis í Ísafjarðardjúpi.

„Hagsmunir íbúa á svæðinu eiga að njóta sanngirnis í ákvörðunum þar sem hagræn áhrif hljóta að skipta máli þegar framtíð fiskeldis á svæðinu er ákveðin. Það er fyrirsjáanlegt að hagræn áhrif fiskeldis mun hafa mikil og jákvæð áhrif á byggðina við Ísafjarðardjúp auk þess að þjóðarbúið allt mun njóta góðs af fiskeldinu til lengri tíma litið.“

Þá segir að það sé ófrávíkjanleg krafa bæjarráðsins „að hagsmunir samfélagsins séu hafðir til hliðsjónar í þeirri stóru ákvörðun um leyfisveitingar fiskeldis í Ísafjarðardjúpi sem nú er framundan.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert