Útlit er fyrir hæga austanátt með rigningu eða skúrum í dag. Bjart með köflum norðan heiða framan af degi en skúrir síðdegis. Líkur á talsverðum dembum á vestanverðu hálendinu síðdegis, segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
„Heldur hraustlegri norðlæg átt á morgun og rigning norðaustan til á landinu en hægari vindur syðra og síðdegisskúrir. Hiti yfirleitt 8 til 16 stig. Næstu daga eru svo heldur stífari norðlægar áttir í kortunum og væta með köflum, en útlit fyrir hægari vind og minnkandi úrkomu um helgina,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.
Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða rigning eða skúrir. Bjart á köflum norðanlands og stöku skúrir síðdegis. Norðlæg átt 5-10 á morgun og þykknar upp með vætu norðaustan til en hægur vindur sunnan heiða og síðdegisskúrir. Hiti yfirleitt á bilinu 8 til 16 stig yfir daginn.
Á miðvikudag:
Norðan 8-13 m/s og rigning norðaustan- og austanlands. Annars staðar norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 og bjartviðri, en stöku skúrir síðdegis. Hiti frá 6 stigum á Norðausturlandi, upp í 17 stig á Suðurlandi.
Á fimmtudag og föstudag:
Norðan og norðaustan 8-15 m/s. Rigning með köflum á Norður- og Austurlandi með hita 7 til 11 stig. Bjartviðri sunnan heiða og hiti 12 til 18 stig.
Á laugardag:
Minnkandi norðlæg átt. Skýjað og lítils háttar væta austan til, en bjart með köflum sunnan- og vestanlands og stöku síðdegisskúrir. Heldur svalara.
Á sunnudag:
Austlæg átt og dálítil rigning austanlands, en annars víða skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti frá 6 stigum austast, upp í 15 stig á suðvestanlands.
Á mánudag:
Fremur hæg norðlæg átt og bjartviðri vestan til en annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti breytist lítið.