Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sótti slasaðan hjólreiðamann í Skálafell um áttaleytið í kvöld. Maðurinn var þar á ferð ásamt fleirum á fjallahjólabraut á svæðinu.
Maðurinn fékk höfuðhögg og rotaðist en var með meðvitund þegar sjúkraflutningamenn komu á svæðið. Maðurinn bar sig þokkalega vel en var orðinn kaldur. Var hann fluttur með fjórhjóli niður að vegi þar með hann var færður um borð í sjúkrabílinn.
Maðurinn var síðan fluttur á Landspítalann til aðhlynningar og skoðunar.