„Ég held við þurfum meiri fjölbreytileika og sveigjanleika í þessu frekar stífa kerfi sem hefur þróast síðastliðna áratugi og ég held að nærtækasta og einfaldasta leiðin sé að opna fyrir fleiri sjálfstætt starfandi skóla,“ sagði Kristján Ómar Björnsson, stofnandi grunnskólans NÚ og formaður Samtaka sjálfstæðra skóla, í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.
Fréttir hafa borist af miklum kennaraskorti í grunnskólum og þá ekki síst í Reykjavík. Kristján segir sjálfstæða skóla ekki standa frammi fyrir slíkum vanda. Þvert á móti sé vandamál NÚ frekar fjöldi umsókna. Flestir sjálfstætt starfandi skólar greiða hærri laun en kjarasamningar kveða á um en því fylgir þá gjarnan meira vinnuframlag segir í fréttinni.
„Við erum að veita ákveðinn sveigjanleika og svigrúm fyrir starfsfólkið okkar, að fá að skapa og gera nýtt, en ekki vinna innan mjög stífs ramma,“ sagði Kristján ennfremur og bætti við að í umsóknarferlinu biðji NÚ umsækjendur að gera lista yfir þau atriði sem þeir telji mikilvægast og laun væru ekki að skora hæst í þeim efnum.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, sagði á dögunum að ein leið til þess að fjölga kennurum væri að fjölga sjálfstætt starfandi skólum landsins.