Yfir þúsund tonn veiðst af makríl

Á makrílveiðum. Mynd úr safni.
Á makrílveiðum. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Þrjátíu smábátar hafa nú hafið veiðar á makríl og var aflastaðan í morgun 1.058 tonn, þar af 902 tonn úr aflareynslupottinum svokallaða. Helmingur þeirra sem hafið hafa veiðar eru komnir með yfir 30 tonn.

Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda. Segir þar að megnið af aflanum hafi veiðst við Reykjanesið, aðallega í og út af Keflavík. Aðrir veiðistaðir séu þá við Snæfellsnes og í Steingrímsfirði.

„Makríllinn er vandveiddur. Einn daginn gefur hann sig það vel að bátarnir fylla sig hver á fætur öðrum, en aðra dagar lætur hann ekki sjá sig,“ segir á vefnum.

Alls eru aflaheimildir smábáta á vertíðinni rúm 9.000 tonn. Í aflareynslupottinum eru um 7.000 tonn og rúm 2.000 tonn til úthlutunar aukalega, ásamt því sem flutt var milli ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert