Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot í verslun í austurhluta borgarinnar um hálffimmleytið í morgun.
Voru lögreglumenn sendir á vettvang til að rannsaka málið. Ekki liggur fyrir hvort þeir sem þar fóru inn höfðu eitthvað á brott með sér, né heldur hvort lögregla viti hverjir voru þar á ferð.
Þá var lögreglu tilkynnt um ökumann á Völlunum í Hafnarfirði sem talinn var vera ölvaður. Er lögregla kom á vettvang var bíllinn mannlaus, en hinn grunaði ökumaður var þar á ferð skammt frá.
Var hann vistaður í fangageymslu lögreglu að lokinni blóðtöku vegna rannsóknar málsins.