Lögreglan á Blönduósi stöðvaði ökumann í gær sem mældist á 162 km hraða. Ökumaðurinn var á ferðinni milli Sauðárkróks og Varmárhlíðar eftir hádegi í gær þegar hann varð á vegi lögreglu.
Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og var að auki rukkaður um væna sektargreiðslu fyrir hraðaksturinn.