Velferðarráðuneytið hefur fengið Guðrúnu Ingvarsdóttur til að stýra innleiðingu aðgerðaáætlunar stjórnvalda í húsnæðismálum samkvæmt sérstökum húsnæðissáttmála sem kynntur var nýlega.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.
Guðrún, sem hefur víðtæka reynslu af bygginga- og húsnæðismálum, kemur til starfa frá Búseta þar sem hún starfaði um árabil sem forstöðumaður þróunar og nýframkvæmda.
Hún hefur jafnframt komið að ýmissi hagsmuna- og greiningarvinnu innan málaflokksins hérlendis og á norrænum vettvangi og sinnt verkefnum sem varða hönnun og hönnunarstýringu við skipulags- og mannvirkjagerð.
Guðrún er með M.Sc. próf í Stjórnun og stefnumótun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands en lokaverkefni hennar fjallaði um umbætur í samkeppnishæfni íslensks byggingariðnaðar. Þá er hún með M.Sc. gráðu í arkitektúr og löggildingu sem arkitekt, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Húsnæðissáttmálinn var unninn af aðgerðahópi ráðherra félags- og húsnæðismála, umhverfis- og auðlindamála, fjármála- og efnahagsmála og sveitarstjórnarmála auk þriggja aðila frá samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
„Aðgerðirnar sem settar eru fram í sáttmálanum eru bæði almennar og sértækar og miða að því að fyrirbyggja aðstæður sem skapað geta viðlíka vanda og nú er á húsnæðismarkaðinum, finna leiðir til að ná sem fyrst jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu og fjölga leiðum til fjármögnunar á eigin húsnæði. Aðgerðirnar verða endurskoðaðar reglulega með hliðsjón af aðstæðum hverju sinni og kunna því að taka breytingum ef þörf krefur,“ segir í tilkynningunni.