Lögreglan á Suðurnesjum og Öryggisnefnd Ljósanætur hafa bannað flug dróna á og yfir hátíðarsvæði Ljósanætur sem haldin verður í Reykjanesbæ helgina 31. ágúst til 3. september.
Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum segir að lögregla hafi farið yfir öryggismál vegna hátíðarinnar. Vilja þau ítreka að leyfislaust flug dróna á meðan að á hátíðinni stendur er stranglega bannað.
Þá verður akstur bifreiða, bæði stórra sem smárra, um Hafnargötu í Reykjanesbæ bannaður á meðan að á hátíðinni stendur. Er það mat lögreglustjóra að allur akstur bifreiða um stóran hóp fótgangandi vegfarenda sé varhugaverður þar sem hann kunni að stofna fólki í umtalsverða hættu.