Fjarðarheiði lokað vegna óhapps

Af Fjarðarheiði.
Af Fjarðarheiði. Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir

Fjarðarheiði milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar er lokuð vegna umferðaróhapps sem varð efst á heiðinni. Mikil þoka er á svæðinu en lítil eða engin slys urðu á fólki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Þar kemur enn fremur fram að einhvern tíma muni taka að koma bifreiðum í burtu en talsverð umferð hafi verið vegna Norrænu sem nú er á Seyðisfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert