Símakerfi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins liggur niðri þessa stundina og er unnið að viðgerð.
Í fréttatilkynningu frá heilsugæslunni er beðist velvirðingar á óþægindum sem þetta valdi, en fólki er bent í millitíðinni á að mæta á heilsugæslustöðvarnar, senda tölvupóst eða nota vefinn Heilsuvera.is.