Þessar götur verða lokaðar á Menningarnótt

Bleikt svæði kortsins sýnir götulokanir. Þær verða frá klukkan sjö …
Bleikt svæði kortsins sýnir götulokanir. Þær verða frá klukkan sjö um morgun til klukkan tvö um nótt. Kort/Menningarnótt

Lokað verður fyrir bílaumferð í miðbænum á Menningarnótt frá klukkan sjö að morgni til klukkan tvö eftir miðnætti þar sem miðborgin verður ein allsherjar göngugata. Ókeypis verður í strætó og einnig verður boðið upp á ókeypis strætóskutlur. 

Þeir sem þurfa að koma á einkabíl er bent á að nota bílastæði við Borgartún þar sem ókeypis strætóskutlur aka fólki til og frá hátíðarsvæðinu frá klukkan hálfátta til klukkan eitt um nótt. Skutlurnar munu aka reglulega til og frá Borgartúni og að Hallgrímskirkju með viðkomu á Hlemmi, sem verður áherslusvæði hátíðarinnar. 

Ókeypis verður í Strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram til klukkan hálf ellefu um kvöld. Þá tekur við sérstök leiðartafla sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni. Hægt er að finna nánari upplýsingar um leiðarkerfi þeirra vagna Strætó sem aka í miðborgina á  vef Strætó.

Þeir sem þurfa að koma á einkabíl er bent á …
Þeir sem þurfa að koma á einkabíl er bent á að nota bílastæði við Borgartún þar sem ókeypis strætóskutlur aka fólki til og frá hátíðarsvæðinu frá klukkan hálfátta til klukkan eitt um nótt. Kort/Menningarnótt

Sérstök bílastæði fyrir fatlaða og hreyfihamlaða verða á þremur sérmerktum stöðum á hátíðarsvæðinu. Bílastæði verður við Tækniskólann á Skólavörðuholti og á horni Túngötu og Suðurgötu í nágrenni við Ráðhús Reykjavíkur. Einnig verður bílastæði vestast á Skúlagötu, framan við Sjávarútvegsráðuneytið. Sérstök salerni fyrir fatlaða verða á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu.

Leigubílar verða á fjórum stöðum í útjaðri hátíðarsvæðisins. Við Hallgrímskirkju, Skúlagötu, BSÍ og Túngötu á bílastæði við Landakotskirkju. Eftir klukkan 21:00 munu leigubílar við Skúlagötu færast yfir á gömlu Hringbraut við enda Njarðargötu.

Sektað verður fyrir ólöglegar bílastöður og þeir bílar sem hindra aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs verða dregnir í burtu svo unnt sé að tryggja aðgengi þessara öryggisaðila ef óhapp ber að.

Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar um götulokanir geta hringt í símaver Reykjavíkurborgar (sími: 411-1111), sem opið verður frá klukkan átta um morgun til ellefu um kvöld á Menningarnótt. 

Nánari upplýsingar eru á vef Menningarnott.is.  

Ókeypis verður í Strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram …
Ókeypis verður í Strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram til klukkan hálf ellefu um kvöld. Þá tekur við sérstök leiðartafla. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert