Bílvelta á Kjalvegi

Bílvelta varð á Kjalveginum laust fyrir klukkan fimm í dag. Að sögn lögreglunnar á Selfossi voru fjórir erlendir ferðamenn í bílnum er hann valt við Bláfellsháls á Kjalveginum og endaði á toppnum.

Fólkið slapp án nokkurra meiðsla frá veltunni og náði sjálft að gera vart við sig. Bíllinn er hins vegar óökuhæfur og þurfti að flytja hann á brot með kranabíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert