Flugfarþeginn vildi ekki borða

Flugfarþega, sem stöðvaður var í fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á föstudaginn, var samkvæmt bókun boðin öll sú aðstoð sem fyrir hendi var, þar á meðal matur, en hann afþakkaði hana. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Því er hafnað að manninum hafi ekki verið boðið að borða og þannig sætt ómannúðlegri meðferð eins og Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður mannsins, hafi haldið fram.

Frétt mbl.is: Sakar lögreglu um ómannúðlega meðferð

„Í bókun um málið kemur skýrt fram að þegar umræddur aðili var kominn í umsjá lögreglu í flugstöðinni var hann spurður hvort hann vildi fá eitthvað að borða. Hann kvaðst frekar vilja sofna meðan beðið var eftir skilríkjasérfræðingi. Lögreglumaður sá þá til þess að vel færi um hann og óskaði aðilinn „ekki eftir frekari aðstoð“, eins og segir í bókuninni. Hann var svo vistaður á lögreglustöð frá kl. 15:30-19:03 hinn 18. ágúst. Aðilanum var því boðin öll sú aðstoð sem fyrir hendi var meðan hann var í umsjá lögreglu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert