Fyrsti vinn­ing­ur gekk ekki út

Hvorki fyrsti né ann­ar vinn­ing­ur gengu út í Vík­ingalottói kvölds­ins. Fyr­ir fyrsta vinn­ing voru í boði rúmir tveir millj­arðar króna, en rúmlega 128 milljónir voru í boði fyr­ir ann­an vinn­ing.

Einn fékk þriðja vinn­ing hér á landi og fékk hann 5,3 millj­ónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Golfklúbbinum Keili.  

Vinn­ingstöl­ur kvölds­ins: 17-18-22-26-33-34.

Vík­inga­tal­an: 7

Eng­inn var með fimm rétt­ar jóker­töl­ur í réttri röð. Þrír voru hins vegar með fjór­ar rétt­ar í réttri röð og fær hver þeirra 100 þúsund krón­ur.

Jóker­töl­ur kvölds­ins: 4-9-5-6-2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert