Handtóku byssumanninn við Ölhúsið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag karlmann sem ógnað hafði öðrum manni með skammbyssu við Ölhúsið á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði sl. föstudag. Bíður hann nú skýrslutöku.

Lýst var eftir manninum í gær og þá lýsti lögregla einnig eftir manninum sem ógnað var og óskaði þess að ná tali af honum. Kom fram í auglýsingu á Facebook-síðu lögreglu að viðkomandi hafi ekið hvítum smábíl.

Ekki kom fram í tilkynningu lögreglu í dag, hvort að sá sem ógnað var hafi gefið sig fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert