Lyklarnir teknir úr vasa í búningsklefa

Ljósmynd/mbl.is

Jeppa af gerðinni Mitsubishi Pajero af árgerð 2007 var stolið við Þróttaraheimilið í hádeginu í dag. Númer bifeiðarinnar er OH-254. Lyklum að bifreiðinni var stolið úr búningsklefa í, en bíllinn stóð læstur á bílastæði.

„Maðurinn var á æfingu þarna í hádeginu og það var farið í búningsklefann og lyklarnir teknir. Það var líka stolið frá fleirum, skóm, tösku o.fl.“ segir Thelma Hillers, annar eigenda bílsins.

„Þegar hann kom inn í klefann var búið að róta í dótinu og þegar hann sá að það var búið að taka lyklana trúði hann ekki sínum eigin augum,“ bætir hún við.

Thelma og Steinar Helgason, eiginmaður hennar, hafa látið lögreglu vita og gefið skýrslu vegna málsins. Á Facebook biðla þau einnig til fólks að hafa augun opin fyrir bílnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert