Sveinbjörg Birna hættir í Framsókn

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík, hyggst hætta í Framsóknarflokkinum.

Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins funduðu síðdegis í dag og herma öruggar heimildir mbl.is að nokkur hiti hafi verið á fundinum. Staða Sveinbjargar innan flokksins var meðal þess sem til umræðu var og að því er heimildir mbl.is herma mun Sveinbjörg segja skilið við flokkinn.

Borgarfulltrúar og aðrir forsvarsmenn innan flokksins sem mbl.is náði sambandi við í kvöld kusu ekki að tjá sig um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert