Fundi frestað þar til tillögur liggja fyrir

Landssamtök sauðfjárbænda ætla að fresta auka-aðalfundi samtakanna þar til útfærðar …
Landssamtök sauðfjárbænda ætla að fresta auka-aðalfundi samtakanna þar til útfærðar tillögur stjórnvalda liggja fyrir. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Auka-aðalfundi, sem Landssamtök sauðfjárbænda höfðu boðað til á morgun, hefur verið frestað þar til boðaðar tillögur stjórnvalda að lausn vanda sauðfjárbænda liggja fyrir. Gert er ráð fyrir að útfærðar tillögur muni liggja fyrir um miðja næstu viku. Er það mat samtakanna að enn skorti skilning stjórnvalda á þeim vanda sem blasir við sauðfjárbændur. Þetta kemur fram í frétt á vef Landssamtaka sauðfjárbænda.

„Landssamtök sauðfjárbænda (LS) hafa verið í viðræðum við stjórnvöld frá því í mars um stöðu greinarinnar og yfirvofandi verðfall til bænda. Í þeim viðræðum hafa LS ásamt Bændasamtökum Íslands (BÍ) lagt fram heildstæðar tillögur að lausn vandans sem miða að því að koma í veg fyrir hrun í sauðfjárbúskap á Íslandi og styrkja greinina til framtíðar,“ segir í fréttinni en hana má sjá í heild sinni hér að neðan.

„Í upphafi þessarar viku bárust fyrstu raunverulegu viðbrögð stjórnvalda við tillögunum LS og BÍ. Fulltrúar atvinnuvegaráðuneytisins boðuðu að endanlegar útfærslur á þeirra tillögum yrðu tilbúin í lok vikunnar þannig að hægt yrði að kynna þær á auka aðalfundi LS föstudaginn 25. ágúst.

Á miðvikudag bárust hins vegar þau skilaboð frá atvinnuvegaráðuneytinu að tillögurnar yrðu ekki tilbúnar fyrr en um miðja næstu viku og því ekki hægt að kynna þær á fundinum. Það var því ljóst að boðaður auka aðalfundur á föstudag myndi ekki geta tekið afstöðu til tillagna stjórnvalda og því hefur verið ákveðið að fresta auka aðalfundi þar til boðaðar tillögur liggja fyrir.

Tillögurnar eins og þær hafa verið kynntar LS eru spor í rétta átt en samtökin telja þær ekki ganga nógu langt til að leysa vandann eins og þær líta út í dag. Sauðfjárbændur hafa fundið fyrir auknum skilningi undanfarna daga og ljóst er að margir hafa áhyggjur af stöðu greinarinnar, meðal annars hafa margar sveitarstjórnir ályktað um málið og fjölmiðlar sýna því vaxandi áhuga. Enn skortir þó á skilning stjórnvalda  til þess aðgerðirnar sem ráðast þarf í hafi þann styrk að leysa málið til frambúðar. Það þarf að breytast.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert