Álykta um afurðaverð

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sveitarstjórn Skaftárhrepps telur að lækkun afurðaverðs til sauðfjárbænda muni koma illa niður á sauðfjárbænum í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í ályktun sem sveitarstjórn hefur sent frá sér.

„Sveitarstjórn Skaftárhrepps telur ljóst að lækkun afurðaverðs til sauðfjárbænda í haust muni koma illa niður á sauðfjárbændum í sveitarfélaginu. Í Skaftárhreppi eru um 60 bú sem byggja afkomu sína m.a. á sauðfjárbúskap og fjöldi sauðfjár í sveitarfélaginu er um 17.000.

Ljóst er að slík skerðing á tekjum mun fyrst og fremst leiða til lækkunar launa sauðfjárbænda og óvíst hversu mörg bú koma til með að standa undir því þar sem þolmörkum hefur þegar verið náð.

Sveitarstjórn Skaftárhrepps telur að tækifæri felist í aukinni samvinnu landbúnaðar og ferðaþjónustu sem hægt sé að nýta mun betur en gert er í dag. Leggja þarf meiri áherslu á markaðssetningu og vöruþróun innanlands fyrir þann mikla fjölda ferðamanna sem sækir Ísland heim.

Sveitarstjórn skorar á forystumenn sauðfjárbænda, sláturleyfishafa og ráðamenn þjóðarinnar að finna framtíðarlausn á þessum alvarlega vanda sem steðjar að greininni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert