Óþvegið salat líklegur sökudólgur

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Niðurstöður rannsóknar hafa leitt í ljós að sterk tengsl voru milli neyslu salats sem var óþvegið og veikinda starfsfólks við Hörðuvallaskóla í Kópavogi og Hvassaleitisskóla í Reykjavík. Í frétt á vef Matvælastofnunar segir að líklega sé um matarsýkingu að ræða.

Á síðustu tveimur vikum hefur komið upp faraldur magakveisu meðal starfsmanna Hvassaleitisskóla og Hörðuvallaskóla. Stór hluti starfsmanna í þessum tveimur skólum hefur veikst með magaóþægindum og niðurgangi sem varir í nokkra daga.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði faraldsfræðilega rannsókn til að finna hvort að tengsl væri á milli neyslu matvæla í Hvassaleitisskóla og veikinda. Salat úr sömu framleiðslulotu hefur líka verið borið fram um svipað leyti í skólunum tveimur að því er segir í frétt MAST.

„Rannsóknir á óþvegnu salati frá sama framleiðanda og það sem boðið var upp á í báðum skólunum hafa leitt í ljós hugsanlegan sýkingarvald, bakteríuna Aeromonas hydrophila sem þekkt er að getur valdið veikindum eins og hér um ræðir. Rannsóknir á saursýnum frá veikum einstaklingum eru enn í gangi,“ segir í fréttinni.

Mikilvægt að gæta hreinlætis

Veikum starfsmönnum er ráðlagt að halda sig heima meðan niðurgangurinn gengur yfir og að auki í einn dag til viðbótar. Þá ættu veikir starfsmenn sem að auki hafa lifrarsjúkdóm eða annað ónæmisbælandi ástand að leita til læknis til að fá sýklalyf sem líklegt er að vinni á bakteríunni.

„Ef einkenni vara lengur en viku eða alvarleg veikindi koma upp getur verið ástæða til að jafnvel annars hraustir einstaklingar fái meðferð. Hvatt er til almenns hreinlætis og handþvottar og að farið sé eftir leiðbeiningum um meðferð matvæla. Ekki er talin hætta á að magakveisan breiðist út til nemenda ef venjulegt hreinlæti er virt og því ekki ástæða til að stöðva starfsemi skólanna á grunni sýkingarhættu.“

Ekki hefur borið á ofangreindum veikindum meðal starfsmanna annarra skóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert