Kínverjar vilja kaupa jörð á milljarð

Í Biskupstungum.
Í Biskupstungum. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Kínverskir fjárfestar hafa áhuga á að skoða kaup á jörðinni Neðri-Dal í Biskupstungum. Ásett verð er 1,2 milljarðar króna en jörðin er 1.200 hektarar að stærð og er sú næsta við Geysissvæðið í Haukadal. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

„Horfa þeir helst til staðsetningar jarðarinnar og þess að þar er heitt vatn,“ segir Böðvar Sigurbjörnsson, fasteignasali hjá Stakfelli, sem hefur jörðina til sölu. Á jörðinni er nokkurt magn af nýtanlegu heitu vatni og þær prófanir sem gerðar hafa verið, gefa vísbendingu um talsvert meira magn af heitu vatni í jörðu.

„Hyggjast þeir byggja upp ferðamannatengdan iðnað og kemur þar nýting heita vatnsins verulega við sögu,“ bætir Böðvar við.

Átta bræður eiga jörðina og munu þeir taka smá skika fyrir sumarbústaði sína. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert