Skemmtiferðaskipin skaðleg heilsu

Fulltrúar frá NABU og dr. Axel Friedrich (t.h.) á fundi …
Fulltrúar frá NABU og dr. Axel Friedrich (t.h.) á fundi Náttúruverndarsamtaka Íslands í morgun. mbl.is/Ófeigur

Mælingar sem gerðar voru á mengun frá skemmtiferðaskipum í Reykjavíkurhöfn sýna að magn örsmárra agna í útblæstri skipa var um 200 sinnum meira en eðlilegt má teljast. Loftgæði í Sundahöfn verða margfalt verri en í miðborgum erlendra stórborga á borð við London, þegar skipin láta vélar sínar ganga við hafnarbakkann.

Náttúruverndarsamtök Íslands, með aðstoð þýsku náttúruverndarsamtakanna (NABU), framkvæmdu mælingarnar. Vísindamennirnir sem önnuðust mælingar segja að gera verði kröfu um að skemmtiferðaskip noti hreinna eldsneyti og að gera verði kröfu um hreinsibúnað í skipum líkt og er í bílum, þar sem mengun frá skemmtiferðaskipum sé skaðleg umhverfinu og heilsu fólks.

„Ekki fara á skemmtiferðaskip og ekki fara á staði sem mörg slík heimsækja ef þú glímir við heilsufarsvandamál fyrir,“ segir Dr. Axel Friedrich, sem hefur verið vísindalegur ráðgjafi mælinga á mengun frá skemmtiferðaskipum við Reykjavíkurhöfn undanfarna daga.

Friedrich er efnafræðingur og sérfræðingur í útblástursmálum og var á meðal vísindamanna sem komu upp um svikamyllu þýskra bílaframleiðenda, sem reyndu að fegra tölur um útblástur díselbíla.

Hættuleg umhverfinu og heilsu fólks

„Loftmengun frá díselvélum – örfínar agnir sem dreifast um langar vegalengdir, (þ.m.t. sótagnir), brennisteinn og köfnunarefnisoxíð eru efni sem auka á gróðurhúsaáhrifin og valda skaða á heilsu fólks,“ sagði Friedrich.

Hann segir þessi efni valda hjarta- og æðasjúkdómum sem og öndunarfærasjúkdómum og að samkvæmt mati framkvæmdastjórnar ESB látist árlega um 50 þúsund einstaklingar af völdum loftmengunar frá skipum.

„Vélar eins og eru um borð í skemmtiferðaskipunum fengju ekki starfsleyfi á landi og það er hneyksli að skipafyrirtæki komist upp með að menga jafnmikið og raun ber vitni,“ sagði Friedrich og bætti við að fyrir hendi séu tæknilausnir sem dugi vel til að leysa þennan vanda.

Náttúruverndarsamtök Íslands segja brýnt að aðildarríki Norðurskautsráðsins grípi til skjótra aðgerða til að koma í veg fyrir bruna svartolíu á norðurslóðum, til að vernda heilsu almennings og hægja á hlýnun andrúmsloftsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert